Blómstursaumur fyrir faldbúning

Kennarar: Kristín Vala Breiðfjörð

Lengd námskeiðs: .

Tími: 31. ágúst og 2. september kl 18:00-20:30

Námskeiðsgjald: 22.900kr (20.610kr fyrir félagsfólk) - efni í prufu innifalið

Þetta námskeið er fyrir þá nemendur sem ætla sér að byrja á faldbúnignspilsi, byrjað verður á að læra saumtæknina og gerð prufa en í seinni tímanum munu nemendur svo taka ákvörðanir um liti og skreytingar fyrir faldbúningspil.

Blómustursaumur er frjáls útsaumsaðferð þar sem saumað er eftir ýmsum munstrum sem dregin eru eða þrykkt á efnið. Að öllum líkindum nefnt eftir viðfangsefninu en hér á öldum árum voru pils oft saumuð með blómabekkjum að neðan. Blómstursaumspor er unnið líkt og varpleggur, nema bandið úr hverju spori er klofið af næsta nálspori á eftir. Í útliti líkist sporið steypilykkju. Á þessu örnámskeiði verður sporið kennt og farið yfir ýmis atriði sem gott er að hafa í huga hvort sem fólk stefni á stærri verkefni eins og faldbúningspils eða eitthvað minna eins og lausavasa.

Nemendur fá prufu af áprentuðu ullarklæði á námskeiðinu sem og garn og nál en þurfa að hafa með sér skæri og fingurbjörg (ef vill).

skráning fer fram í tölvupósti á skoli@heimilisidnadur.is