Kennarar: Kristín Vala Breiðfjörð
Lengd námskeiðs: 1 skipti - 3.5 klst
Tími: 7. júní - laugardagur kl 12:30-16:00
Námskeiðsgjald: 16.900kr. (15.210kr. fyrir félagsmenn) - efni innifalið - ATH greiða þarf sérstaklega inná safnið eða framvísa árskorti
Blómustursaumur er frjáls útsaumsaðferð þar sem saumað er eftir munstri sem dregið er upp eða þrykkt á efnið. Að öllum líkindum er sporið nefnt eftir viðfangsefninu en hér á öldum árum voru pils oft saumuð með blómabekkjum að neðan, líkt og brúðarbúningurinn sem er í láni á Þjóðminjasafninu frá V&A.
Á þessu örnámskeiði verður farið yfir ýmis atriði sem gott er að hafa í huga hvort sem stefnt er að stærri verkefnum eins og faldbúningspils eða einhverju minna eins og lausavasa.
Nemendur fá ullarklæði með áprentuðu blómi á námskeiðinu, og garn og nál, en þurfa að hafa með sér skæri og fingurbjörg (ef vill). Þegar nemendur hafa lokið við útsauminn er hægt að útbúa lítinn nálapúða úr prufunni.
Til að taka þátt í námskeiðinu þarf að eiga gilt árskort í Þjóðminjasafn Íslands. Árskortið er fáanlegt í móttöku safnsins og gildir á alla viðburði á sýningar safnsins í ár frá kaupum.