Byrjendaspor í Lunéville útsaumi - fullbókað

Kennarar: Guðrún Elena Magnúsdóttir

Lengd Námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tímasetningar: 15. og 22. október - kl. 18-21

Námskeiðsgjald: 22.900kr (20.610kr fyrir félagsmenn) efni er innifalið 

 Lunéville er frönsk útgáfa af Aari eða Tambour útsaumi. Saumað er í röngu efnis eða réttu þegar leitast er eftir breiðari línum.

Þetta námskeiði er ætlað byrjendum sem aldrei hafa beitt Lunéville nál áður.

Kennt verður að skipta um átt, sauma beinar línur, ferning og hring. Unnið með franskar og ítalskar pallíettur, litlar og langar glerperlur. Einnig verður notast við Fil A Gant og útsaumstvinna.

Verkefnið er útlínur og kjarni á Baldursbrá. Ef nemandi er fljótur að ná tækninni þá er lítið mál að fylla út í blöð blómsins en það getur tekið dágóðan tíma að ná tökum á nálinni.  Síðast en ekki síst verður kennt hvernig best er að ganga frá útsaumi af þessari gerð.

Efni er innifalið og nemendur fá saumhring og tambournál til láns á meðan á námskeiðinu stendur. Að námskeiði loknu ættu nemendur að geta notfært sér undirstöðuatriði þessa franska saums. 

 Hámarksfjöldi nemenda er 7.