Gamli krosssaumurinn -Örnámskeið!
Kennari: Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður.
Lengd námskeiðs: 1 skipti = 3 klst.
Tími: 2. febrúar - miðvikudagur kl. 18-21.
Námskeiðsgjald: 9.400 kr. (8.460 kr. fyrir félagsmenn) - nál, efni og garn í prufu innifalið.
Kenndur er gamli íslenski krosssaumurinn (fléttuspor). Nemendur gera fallega prufu með munstri úr Íslensku sjónabókinni sem síðar má setja í púða (sjá sér námskeið í uppsetningu púða) eða í ramma.
Hámarksfjöldi nemenda er átta.