Harðangur og klaustur
Kennari: Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir.
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 7 klst.
Tími: 10. og 17. nóvember - mánudagar kl 17-20.30
Námskeiðsgjald: 25.500kr. (22.950kr. fyrir félagsmenn) – nál, efni og garn í prufur er innifalið.
Námskeið í grunnatriðum harðangurssaums sem hentar vel byrjendum. Einkenni aðferðarinnar er flatsaumur, stólpar sem kastað er yfir og fyllingar í útklippt göt. Flatsaumur myndar nokkurs konar blokkir/þyrpingar sem raðast saman. Nemendur hafi með sér skæri, fingurbjörg og saumhring ef vill. Í seinni tímanum gefst nemendum tækifæri á að byrja á stærra verkefni s.s. dúkum og milliverkum.