Harðangur og klaustur
Kennari: Lína Björk Sigmundsdóttir
Lengd námskeiðs: 4 skipti = 8 klst.
Tími: 14., 21. og 28. september og 5. október - mánudagar kl 18:00-20:00
Námskeiðsgjald: 31.900kr. (28.710kr. fyrir félagsmenn) – nál, efni og garn í prufur er innifalið.
Námskeið í grunnatriðum harðangurssaums sem hentar vel byrjendum. Einkenni aðferðarinnar er flatsaumur, stólpar sem kastað er yfir og fyllingar í útklippt göt. Flatsaumur myndar nokkurs konar blokkir/þyrpingar sem raðast saman. Nemendur hafi með sér skæri, fingurbjörg og saumhring ef vill. Í seinni tímanum gefst nemendum tækifæri á að byrja á stærra verkefni s.s. dúkum og milliverkum.