Knipl á þjóðbúning
Kennari: Anna Jórunn Stefánsdóttir.
Lengd námskeiðs: 3 skipti = 10 klst.
Tími: 13. september - laugardagur kl. 10 - 14, 15. og 22. september - mánudagar kl. 18 - 21.
Námskeiðsgjald: 33.900 kr. (30.510 kr. fyrir félagsmenn) - nemendur fá afnot af kniplbretti og kniplpinnum á meðan að násmkeiðinu stendur, efni er ekki innifalið.
Kennt er að knipla á upphlutsbak. Nemendur velja á milli blúndu-, stiga-, nets- eða takkamynsturs úr gull- eða silfurþræði á 20. aldar upphlut. Á 19. aldar upphlut stendur valið á milli takka eða nokkurra mismunandi leggingamynstra úr gull- eða silfurþræði og/eða silki. Athugið að námskeiðið er þrjú skipti með möguleika á að bæta við fjórða skiptinu ef þarf.