Körfugerð - Rifjakarfa / eggjakarfa

Körfugerð -  Rifjakarfa / eggjakarfa

Kennari: Guðrún Pétursdóttir

Lengd námskeiðs: 1 skipti = 6 klst.

Tími: 26. september - laugardagur kl 10:00-16:00

Námskeiðsgjald: 26.900kr (24.210 kr fyrir félagsmenn) efni er innifalið 

Á þessu námskeiði vinna nemendur nær eingöngu með efnivið sem nálgast má í okkar nærumhverfi og gera eina rifjakörfu / eggjakörfu. Farið verður yfir hvaða efni en hægt að nota, hvernig er best að safna því og geyma þannig að hægt sé  að nota það í körfugerð ásamt ýmsu öðru sem tengist viðfangsefninu.