Lissuskyrta

Lissuskyrta

Kennarar: Elizabeth Katrín Mason og Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 6 skipti = 19 klst.

Tími: 18. október kl 18.00-21.00 máltaka og prufur,

25. október kl. 18.00-22.00, 1. og 15. nóvember kl. 18.00-21.00 lissur,

29. nóvember og 5. desember kl 18.00-21.00 skyrtusaumur.

Námskeiðsgjald: 72.500kr. (65.250 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Vel þekktar eru skyrtur með handgerðu blóma- eða hringmynstri í hálsmáli og á ermum en slíkar skyrtur voru vinsælar um seinni hluta 20. aldar og áhugi á þeim hefur aukist síðustu ár. Mynstrið er gert úr svokölluðum lissum (efnisrúllum) sem snúnar eru í hin ýmsu munstur. Á námskeiðinu læra nemendur aðferðina við að gera lissur og búa til úr þeim munstur

Námskeiðinu er skipt í 2 hluta annarvegar að læra aðferðina við að gera lissurnar og munstrið og hins vegar að sauma skyrtuna sjálfa. Umtalsverð heimavinna fylgir námskeiðinu og mikilvægt er að nemendur séu búnir með lissustykkin áður en skyrtusaumatímarnir byrja.