Lissuskyrta haust 2026

Lissuskyrta

Kennarar: Elizabeth Katrín Mason 

Lengd námskeiðs: 7 skipti = 18 klst.

Tími: 23. september miðvikudagur kl 18.00-21.00 máltaka og prufur,

30. september, 14. og 21. október miðvikudagar kl 18.00-20.00 lissur,

28. október kl 18.00-19.00 mátun og skil á lissum 

11. og 18. nóvember kl 17.30-21.30 - skyrtusaumur 

Námskeiðsgjald: 73.900kr ( 66.510kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Vel þekktar eru skyrtur með handgerðu blóma- eða hringmynstri í hálsmáli og á ermum en slíkar skyrtur voru vinsælar um seinni hluta 20. aldar og áhugi á þeim hefur aukist síðustu ár. Mynstrið er gert úr svokölluðum lissum (efnisrúllum) sem snúnar eru í hin ýmsu munstur. Á námskeiðinu læra nemendur aðferðina við að gera lissur og búa til úr þeim munstur

Námskeiðinu er skipt í 2 hluta annarvegar að læra aðferðina við að gera lissurnar og munstrið og hins vegar að sauma skyrtuna sjálfa. Umtalsverð heimavinna fylgir námskeiðinu og mikilvægt er að nemendur séu tilbúnir með lisssustykkin í mátuninni.