Listsaumur - blómamunstur Sigurðar málara - örnámskeið

Listsaumur - blómamunstur Sigurðar málara 

Kennari: Katrín Jóhannesdóttir

Lengd námskeið: 1 skipti – 3 klst

Tími: 22. mánudagur - laugardagur kl 18-21

Námskeiðsgjald: 22.900kr (20.610kr fyrir félagsmenn) efni er innifalið 

Á námskeiði í listsaum verða saumuð munstur sem Sigurður Guðmundsson hannaði fyrir skautbúning og kyrtilbúning. Nemendur geta valið milli tveggja munstra: annars vegar Sóleyjarmunstrið og hins vegar Býsanska munstrið. Katrín Jóhannesdóttir mun kenna mismunandi útsaumsspor, svo sem flatsaum, fræhnúta, löng og stutt spor og leggsaum. Útsauminn má svo setja upp í púða eða ramma inn.

Nemendur þurfa að hafa með sér skæri og útsaumshring, kennarinn mælir með litlum hringjum, hægt er að fá hvoru tveggja í verslun félagsins. 

Vinsamlegast takið fram í athugasemd hvort valið sé Sóleyjarmunstur eða Býsanskt munstur nr. 30.

Sóley: 

s´ley

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Býsanskt no 30