Framhaldsnámskeið í Lunéville útsaumi
Kennari: Guðrún Elena Magnúsdóttir
Lengd Námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tímasetningar: 25. mars og 8. apríl - kl. 18-21
Námskeiðsgjald: 23.900kr (21.510kr fyrir félagsmenn) efni er innifalið
Þetta námskeið er ætlað nemendum sem hafa lokið „Byrjendaspor í Lunéville útsaumi“ eða kunna að minnsta kosti grunnspor með tambour/lunéville nál.
Kennd verður ný pallíettu aðferð, blandað vermicelli, þrívídd og frágangur með straujárni. Pallíettu aðferðin er góður undirbúningur fyrir Soie Ovale. Verkefnið er blóm sem hægt er að sauma á veski/flík eða nota í nælu. Vermicelli bikarblöð, pallíettu krónublöð og glerperlu frævlar. Mismunandi litasamsetningar í boði og val um sykuraðferð, háan handsaum eða miðháan handsaum í frævla.
Fínt að koma með Artline penna (2-6mm) en ekki nauðsynlegt. Mikilvægt að mæta með títuprjóna og lítil saumaskæri. Mæli með Bohin 24013 5in en storkaskæri henta líka.
Efni er innifalið (silki organza, filt, þéttofið ullarefni, franskar/ítalskar pallíettur, japanskar/franskar/þýskar glerperlur, málmþræðir, DMC + fil a gant tvinni og sterkur bómullartvinni).
Nemendur fá saumhring og tambournál til láns á meðan á námskeiðinu stendur.
Hámarksfjöldi nemenda er 7.