Myndvefnaður
Kennari: Ólöf Einarsdóttir.
Lengd námskeiðs: 5 skipti = 15 klst.
Tími: 9., 16. og 30. október og 6. og 13. nóvember fimmtudagar kl. 17:30 - 20:30. ATH að ekki er tími 23. október
Námskeiðsgjald: 54.900kr. (49.410kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið.
Myndvefnaður er spennandi vefnaðaraðferð þar sem ofin er mynd og býður upp á marga möguleika í efnisvali og útfærslum. Nemendur geta annaðhvort notað ljósmynd eða teikningu að fyrirmynd mikilvægt er að nemendur hugi að myndefni áður en námskeiðið hefst. Uppistaða er strekkt á blindramma og efni valið í ívaf. Farið er í handbrögð, ýmsar vefnaðaraðferðir, frávik og frágang á myndum. Innifalið í námskeiðinu er allt efni og blindrammi til að vefa í.
Hámarksfjöldi nemenda er átta.