Perluvefnaður í skartgripagerð
Kennari: Guðrún Elena Magnúsdóttir
Lengd Námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tímasetningar: 22 og 29. apríl - kl. 18-21
Námskeiðsgjald: 24.900kr (22.410kr fyrir félagsmenn) efni er innifalið
Þetta námskeið er ætlað öllum og engin reynsla nauðsynleg. Kennt verður að styrkja, herða, ganga frá og ákvarða hvar best er að hnýta.
Verkefnið er perluvefnaður utan um tékkneskan glerkristal. Litlar japanskar/tékkneskar/þýskar glerperlur fanga og styrkja glerkristalinn.
Keðjan er einföld endurtekning á umbreyttu Peyote með litlum vönduðum glerperlum.
Allt efni er innifalið og 6 litasamsetningar eru í boði (Blár, appelsínugulur, grænn, grár, o.f.l.)
Nemendur fá nálar til láns.
Engin tvö hálsmen verða eins.
Mikilvægt að mæta með lítil skæri og fingurbjörg. Brennipenni verður á staðnum til afnota.
Hámarksfjöldi nemenda er 6.