Peysufatapeysa - FULLBÓKAÐ

PEYSUFATAPEYSA

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 8 skipti = 20 klst.

Tími: Máltaka 27. ágúst, Saumatímar 10., 17. og 24. september 8., 15., 22., og 29. október – fimmtudagar kl. 18:30 - 21:00. (ATH að ekki er tími 1. október)

Námskeiðsgjald: 85.700 kr. (77.130 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Námskeiðið er ætlað þeim sem saumað hafa upphlut en vilja bæta við peysufatapeysu en nota sama pilsið. Saumuð er peysufatapeysa 19. eða 20. aldar, sjá nánar á www.buningurinn.is. Flíkin er klæðskerasniðin og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.