Kennari: Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 8 skipti = 20 kslt
Máltaka: 17. september - fimmtudagur kl 18:00-20:30
Saumatímar: 8. september - 26. nóvember kl 18:00-20:30
Námskeiðsgjald: 119.900kr ( 107.910kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið
Námskeiðið er ætlað þeim sem saumað hafa upphlut en vilja bæta við peysufatapeysu (19. eða 20. aldar) en nota sama pilsið.
Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.