Peysufatapeysa

PEYSUFATAPEYSA

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 8 skipti = 20 klst.

Tími: Máltaka 28. janúar kl 18.30-21.00

Saumatímar 11. febrúar - 25. mars  – fimmtudagar kl. 18:30 - 21:00.

Námskeiðsgjald: 91.500 (82.350 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Námskeiðið er ætlað þeim sem saumað hafa upphlut en vilja bæta við peysufatapeysu en nota sama pilsið. Saumuð er peysufatapeysa 19. eða 20. aldar, sjá nánar á www.buningurinn.is. Flíkin er klæðskerasniðin og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.