Prufuvefnaður - FULLBÓKAÐ

Prufuvefnaður

Kennari: Sigríður Ólafsdóttir.

Lengd námskeiðs: 9 skipti = 32 klst. + frjáls aðgangur að vefstofu á opnunartíma HFÍ.

Tími: 12. og 13. september kl 10-15 – laugardagur og sunnudagur. 15., 16., 29., og 30. september, 13. og 14. október kl 18-21 - þriðjudagur og miðvikudagur og 24. október 10-14  laugardagur.

Námskeiðsgjald: – 89.600 kr. / 69.600 kr. (80.640 kr. / 60.640 kr. fyrir félagsmenn) efni er innifalið

Athugið: Velunnari félagsins styrkir hvern þáttakanda um 20.000kr til lækkunnar námsgjalds.

Námskeiðið hentar byrjendum jafnt sem þeim sem vilja upprifjun í vefnaði. Nemendur setja sameiginlega upp í vefstóla og vefa að lágmarki 8 mismunandi prufur t.d. vaðmál, odda vaðmál, hringja vaðmál, vöffluvef, glit, þráðavef, pokavoð o.fl. Námskeiðið er góður grunnur til að átta sig á möguleikum og fjölbreytileika vefnaðar. Gefnar eru frívikur milli kenslustunda til að nemendur geti klárað prufurnar.