Prufuvefnaður - FULLBÓKAÐ

Prufuvefnaður

Kennari: Sigríður Ólafsdóttir.

Lengd námskeiðs: 9 skipti = 32 klst. + frjáls aðgangur að vefstofu á opnunartíma HFÍ.

Tími: 30. og 31. janúar kl 10-15 - laugardagur og sunnudagur. 3., 4., 17. og 18. febrúar, 3. og 4. mars - miðvikudagur og fimmtudagur kl 18-21 og 13 mars kl 10-14 - laugardagur 

Námskeiðsgjald: – 95.360 (85.820 kr. fyrir félagsmenn) efni er innifalið

Námskeiðið hentar byrjendum jafnt sem þeim sem vilja upprifjun í vefnaði. Nemendur setja sameiginlega upp í vefstóla og vefa að lágmarki 8 mismunandi prufur t.d. vaðmál, odda vaðmál, hringja vaðmál, vöffluvef, glit, þráðavef, pokavoð o.fl. Námskeiðið er góður grunnur til að átta sig á möguleikum og fjölbreytileika vefnaðar. Gefnar eru frívikur milli kenslustunda til að nemendur geti klárað prufurnar.