Slyngdir íleppar

Kennari: Herborg Sigtryggsdóttir 

Lengd námskeiðs: 3 skipti = 9 klst 

Tími: 4., 18. og 20. maí - mánudagar og miðvikudagur kl 18:00-21:00

Námskeiðsgjald: 31.900kr (28.710kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið 

Nemendur byrja á að prjóna íleppa eftir uppskrift.
Kennt að búa til uppistöðu fyrir fótofið band. Nemendur æfa sig á að vefa band á fæti.
Þegar íleppar hafa verið prjónaðir, þæfðir og fóðraðir er byrjað að slyngja, þ.e. að brydda íleppana með fótofnu bandi, sem er gert um leið og bandið er ofið.

Námskeiðsáætlun:

  1. Nemendur byrja á að prjóna íleppa. Ljúka þarf við að prjóna (og þæfa) íleppana heima.
    Rakið í uppistöðu fyrir fótvefnað. Einskeftuhöföld bundin í uppistöðuna.
    Ef tími vinnst til er byrjað að vefa fótofið band.
  2. Nemendur koma með prjónaða (og þæfða) íleppa. Koma einnig með litla prjónaprufu sem hefur verið þæfð.

Lepparnir fóðraðir og varpaðir við ullarfóðrið.
Byrjað að vefa á fæti. Ofið band. Byrjað að slyngja prufu.

  1. Lepparnir slyngdir. Gengið frá slyngingu.