Svuntuvefnaður
Kennari: Elísabet Jóhannsdóttir
Tími: 2 vikur.
Upphafsdagur 1. nóvember
Stefnt er á að fyrstu nemendur byrji að vefa 2. nóvember
Verð: 35.000kr (31.500 kr. fyrir félagsmenn) efni í ívaf ekki innifalið
Á þessu námskeiði munu nemendur vefa efni í svuntu við íslenska þjóðbúninga. Búið verður að setja upp í 2 stóla og er val á milli þessa að vera með hvíta eða svarta uppistöðu. Nemendur fá tilsögn og kennslu á réttu handtökunum og hafa svo 2 vikur til að vefa svuntuefnið. Kennarar verða til staðar eftir þörfum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir öll sem langar til að vefa sér svuntu í sínum uppáhald litum.
Hægt er að nota ýmiskonar ull/band í ívafið eins og moraband (fæst í verslun Heimilisiðnaðarfélagsins), einband eða annað fínband, ef nemendur eiga band sem þeir vilja nota er best að koma með það í fyrsta tíma og fá ráðgjöf frá kennara.
Boðið verður uppá 6 sæti, 3 í ljósa uppistöðu og 3 í svarta.
Fyrir frekari upplýsingar og skárningu hafið samband við skoli@heimilisidnadur.is