Þjóðbúningasaumur á Laugalandi í Eyjafirði október

Akureyri

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 12 klst. Ath. hver helgi er stök.

Dagsetningar haust 2025: 

20. og 21. september

18. og 19. október 

15. og 16.. nóvember 

Námskeiðsgjald: Hver helgi 53.000kr (47.700kr fyrir félagsmenn)

Frá árinu 2014 hefur Heimilisiðnaðarfélag Íslands boðið upp á námskeið í þjóðbúningasaum í gamla kvennaskólanum að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. 

Á námskeið í þjóðbúningasaumi á Laugalandi í Eyjafirði sem haldið er í samstarfi við þjóðháttafélagið Handraðann vinna nemendur að ólíkum verkefnum, gerð faldbúninga, kyrtla, peysufata og upphluta, skyrtu- og svuntu­saumi, útsaumi eða baldýringu. Hver helgi er stök og er mögulegt að taka þátt hluta úr helgi og hafa þeir sem skrá sig heila helgi forgang. Verðið fyrir námskeiðshelgina er 53.000 krónur (47.700kr fyrir félagsmenn). 

Kennt er frá kl 10-17 á laugardögum og sunnudögum (getur breyst eftir flug tímum), tekið er klukkutíma hádegishlé. Aðstöðugjald er 500kr á helgi og greiðist beint til Handraðans fyrir kaffi og klósettpappír. Stundum er boðið uppá að kaupa heitan mat og kostar hann í kringum 1000kr og er látið vita af honum á Facebook hópnum.

Nemendur sem eru að sauma heilan búning hvort sem er upphlut eða peysuföt þurfa að jafnaði 4-6 helgar til að klára. Áður en komið er í fyrstu saumahelgina er mikilvægt að bóka tíma í máltöku annaðhvort á kennsluhelgi á Laugalandi eða í Reykjavík. Þegar málin eru tekin eru einnig öll efni valin í búninginn. Efniskostnaður í 1 búning er á bilinu 120.000-190.000kr +silfur og auk þess greiða nemendur sniðgjald beint til kennara (42.000kr fyrir heilan búning)

Á laugalandi er einnig möguleiki að sauma sér einn af stærri búningunum svo sem faldbúning eða skautbúning sem og læra allar skeytingaaðferðir sem við notum í búningana s.s. baldýringu, knipl, blómstursaum og listsaum. Nemendur sem ætla að leggja í eitt af þessum stærri verkefnum mega gera ráð fyrir að það sé þriggja ára verkefni en þó er það breytilegt eftrir hverjum og einum.

Hægt að skrá sig á saumahelgi með því að senda tölvupóst á [email protected] eða fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan. Lokadagur fyrir skráningu verður fimmtudagurinn tvem vikum fyrir kennslu helgi, þ.e.a.s. 15 dögum áður en kennsla hefst og við munum senda reikning um leið og skráning er gerð. Hafi lágmarksþátttaka ekki náðst á þessum degi mun kennslan falla niður í þeim mánuði.

Skráning á námskeið