Þjóðbúningur herra og drengja
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 8 skipti = 24 klst.
Tími: Máltaka 14. febrúar kl. 17.00-20.00
Saumatímar: 28. febrúar - 24. apríl miðvikudagar kl. 18:00 - 21:00. ATH að ekki eru tímar 27. mars og 17. apríl.
Námskeiðsgjald: 116.900 kr. (105.210 kr. fyrir félagsmenn)
Saumaður er þjóðbúningur herra eða drengja - buxur, skyrta og vesti. Sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ. Mögulegt er að bæta við aukatímum fyrir þá sem einnig vilja sauma treyju/jakka.