Þjóðbúningur herra og drengja
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 8 skipti = 24 klst.
Tími: Máltaka 3. apríl, laugardagur kl 14-17
Saumatímar: 27. og 29. apríl, 4., 11., 13., 18. og 25. maí - þriðjudagar og fimmtudagar kl 18.00-21.00
Námskeiðsgjald: 147.000kr (132.300kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið
Saumaður er þjóðbúningur herra eða drengja - buxur, skyrta og vesti. Sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.