Þjóðbúningur herra og drengja - námskeið

Þjóðbúningur herra og drengja

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir

Lengd námskeiðs: 7 skipti = 21 klst.

Tími: Máltaka 30. september kl. 18:30 - 21:30

Saumatímar: 14., 21. og 28. október og 11., 18. og 25. nóvember fimmtudaga kl. 18:30 - 21:30.

Námskeiðsgjald: 97.250 kr. (87.525 kr. fyrir félagsmenn)

 

Saumaður er þjóðbúningur karla eða drengja - buxur, skyrta og vesti.  Sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ. Mögulegt er að bæta við aukatímum fyrir þá sem einnig vilja sauma treyju/jakka.