Þjóðbúningur herra og drengja
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 6 skipti = 21 klst.
Tími: Máltaka 1. nóvember laugardagur kl 14-17
Saumatímar: 22. nóvember, 6. desember, 10. og 24. janúar
Námskeiðsgjald: 126.000kr (113.400kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið
Saumaður er þjóðbúningur herra eða drengja - buxur, skyrta og vesti. Sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.