ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA Á AUSTURLANDI
Námskeið hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands í samstarfi við Hallormsstaðaskóla
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.
Lengd námskeiðs: 4 helgar = 48klst – laugardagur kl 11-18 og sunnudagur frá kl. 10-17 tekið er klukkutíma hádegishlé.
Máltaka – laugardaginn 22. Ágúst kl 11-14
Saumahelgar:
26.-27. September,
10.-11. Október
31. októbert og 1. Nóvember
13– 14. Nóvember.
Kennt verður í Hallormsstaðarskóla
Námskeiðsgjald : 300.000kr (270.000kr. fyrir félagsmenn HFÍ) - efni er ekki innifalið.
Staðfestingagjald 60.000kr er greitt um leið og skráning er framkvæmd og er óafturkræft. Möguleiki er að skipta greiðslum fyrir restinni af námskeiðsgjaldi í tvennt.
Síðasti skráningardagur fyrir námskeiðið er 24. júní.
Á þessu námskeiði er saumaður er upphlutur eða peysuföt, 19. eða 20. aldar. Hægt er að skoða mismunandi búningana sem er í boði á heimasíðu Heimilisiðnaðarfélagsins en mikilvægt er að nemendur séu búnir að velja tegund búnings fyrir máltöku- sjá nánar á www.buningurinn.is.
Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka fer fram laugardaginn 22. ágúst. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð og nauðsynlegt að sinna henni til að ná að klára á tilsettum tíma.
Allt efni og tillegg að fráskyldum silfrunum er fáanlegt í verslun HFÍ. Gera má ráð fyrir fniskostnaði í búning er á 150.000 – 180.000kr. en kostnaður getur verið breytilegur eftir því hvaða búningur og efni verða fyrir valinu. Í máltökunni velja nemendur öll efni.
Við minnum á að flest öll stéttafélag styrkja félagasmenn sína til þátttöku á námskeiðum Heimilisiðanaðarfélagsins.