Þjóðbúningur kvenna - haust 2026 dagnámskeið

Þjóðbúningur kvenna – dagnámskeið 

Kennari: Jófríður Benediktsdóttir

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Máltaka: 10. september – fimmtudagur – kl. 10-13

Saumatímar: 24. september - 26. nóvember  – fimmtudagar – kl. 10-13 

Námskeiðsgjald: 185.000 kr. (166.500 fyrir félagsmenn) Efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar – sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000 kr. eftir búning og efnum. 

Ath: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þeir hlutir séu tilbúnir áður en námskeið í búningasaumnum hefst. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.

Hámarksfjöldi nemenda er sex.