Þjóðbúningur kvenna - dagnámskeið - FRESTA

ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA — DAGNÁMSKEIÐ

Kennari: Jófríður Benediktsdóttir.

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Tími: Máltaka 26. janúar kl. 10-13

Saumatímar: 2., 7., 11., 16., 21., 25. febrúar og 2., 7., 11. og 21. mars,  kennt mánudaga og föstudaga aðra vikuna en miðvikudaga hina vikuna. Kl. 10-13

Námskeiðsgjald: 148.500 kr. (133.650 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma.

Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð.

Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.

Aths.: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu.

Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.

Hámarksfjöldi nemenda er sex.