Þjóðbúningur kvenna - kvöldnámskeið - FULLBÓKAÐ

ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Tími: Máltaka – 8. september

Saumatímar 22. september – 1. desember - þriðjudaga kl. 18:30 - 21:30. (ATH ekki verður kennsla 13. september)

Námskeiðsgjald: 139.000 kr. (125.100 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.