Þjóðbúningur kvenna - kvöldnámskeið- FULLBÓKAÐ

ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA N121-101

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Tími: Máltaka 12. janúar kl. 18.30-21.30

Saumatímar: 26. janúar – 30. mars þriðjudaga kl. 18:30 - 21:30.

Námskeiðsgjald: 148.500 kr. (133.650 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.