Þjóðbúningur kvenna - kvöldnámskeið - FULLBÓKAÐ

ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA N121-101

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.

Tími: Máltaka 23. ágúst kl. 18.30-21.30

Saumatímar: 13. september - 22. nóvember -  þriðjudaga kl. 18:30 - 21:30 - ATH að ekki er tími 15. nóvember 

Námskeiðsgjald: 152.500 kr. (137.250 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.

Aths.: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá  undir Námskeið/Þjóðbúningar. 

Hámarksfjöldi nemenda er sex.