ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA KVÖLDNÁMSKEIÐ
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.
Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.
Tími: Máltaka 20. september kl. 18.00-21.00
Saumatímar: 4. október - 13. desember kl. 18:30 - 21:30 - ATH að ekki er tími 29. nóvember
Námskeiðsgjald: 155.500 kr. (139.950 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.
Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ.
Aths.: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.
Hámarksfjöldi nemenda er sex.