Þjóðbúningur kvenna - vor 2026 dagnámskeið

Þjóðbúningur kvenna – dagnámskeið 

Kennari:
Jófríður Benediktsdóttir

Lengd námskeiðs:
11 skipti = 33 klst.

Máltaka:
15. janúar – fimmtudagur – kl. 10-13

Saumatímar:
29. janúar - 9. apríl  – fimmtudagar – kl. 10-13 ATH að ekki er tími 2. apríl 

Námskeiðsgjald:
180.000 kr. (162.000 fyrir félagsmenn)
Efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar – sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000 kr. eftir búning og efnum. 

Ath: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar. 

Hámarksfjöldi nemenda er sex.