Þjóðbúningur kvenna - vor 2026 mánudagar 1 pláss laust

Þjóðbúningur kvenna – kvöldnámskeið

Kennari:
Jófríður Benediktsdóttir.

Lengd námskeiðs:
11 skipti = 33 klst.

Máltaka:
2. febrúar – mánudagur – kl. 18-21

Saumatímar: 
16. febrúar - 4. maí  – mánudagar – kl. 18-21

Ath: enginn tími verður 30. mars og 6. apríl 

Námskeiðsgjald: 180.000 kr. (162.000 fyrir félagsmenn)

Efni er ekki innifalið.

Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar – sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000 kr. eftir búning og efnum. 

Ath: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá  undir Námskeið/Þjóðbúningar. 

Hámarksfjöldi nemenda er sex.