Kennari: Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 12 skipti = 36 klst.
Máltaka: 12. janúar – þriðjudagur – kl. 18-21
Saumatímar: 26. janúar - 13. apríl - Þriðjudagar – kl. 18-21 ATH að ekki er tími 23. mars.
Námskeiðsgjald: 197.000 kr. (177.300kr. fyrir félagsmenn) Efni er ekki innifalið.
Saumaður er upphlutur 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000kr eftir búning og efnum.
Ath: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þeir hlutir séu tilbúnir áður en námskeið í búningasaumnum hefst. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.