Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi
Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð
Haustönn 2023: 7. október, 4. nóvember og 2. desember laugardaga kl. 10 - 13.
Námskeiðsgjald: 9.000 kr. skiptið (8.100 kr. fyrir félagsmenn).
Umsjónartímar eru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklingsmiðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.
Skráning fer fram á skoli@heimilisidnadur.is