Uppsetning á púðum - REYKJAVÍK

Uppsetning á púðum

Kennari: Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 21. og 28. mars - þriðjudagar kl 18.00-21.00

Námskeiðsgjald: 17.900 kr. (16.110 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Á námskeiðinu er kennt að setja upp útsaum í púða. Nemendur komi með nýjan eða gamlan útsaum og efni í púðaborð og læra að setja upp.

Nemendur þurfa að koma með saumavél (hægt að fá lánaða saumavél á staðnum, ef þess þarf að látið vita fyrir fram).

Nemendur þurfa einnig að hafa með sér allt almennt saumadót sem gæti nýst s.s tvinna, þræðitvinna, skæri, nálar, saumavélanálar, málband, krít, skriffæri og fleira sem. Eitthvað er til af efnum í púðaborðið í verslun Heimilisiðnaðarfélagsins. 

Hámarksfjöldi nemenda er átta.