Vattarsaumur - námskeið

Vattarsaumur

Kennari: Marianne Guckelsberger.

Lengd námskeiðs: 2 skipti= 6 klst.

Tími: 11. og 18. apríl - mánudagar kl. 18 - 21

Námskeiðsgjald: 17.900 kr. (16.110 kr. fyrir félagsmenn).  Efni er ekki innifalið

Aðferð sem notuð var við gerð vettlinga, sokka o.fl. áður en prjón þekktist.

Notuð er mjög gróf nál og efnið ,,saumað“. Nemendur gera prufur og læra tvö mismunandi spor, auka út og minnka.

Þátttakendur fá vattarsaumsnál að láni en mæta með eigið gróft ullargarn. Léttlopi hentar vel en ekki plötulopi.

Hámarksfjöldi nemenda er átta.