Vefnaður - þemanámskeið 3 – ORMEL (SATIN) OG SAMSETTAR BINDINGAR
Kennari: Elísabet Jóhannsdóttir
Lengd námskeiðs: 5 skipti 18 klst með kennara
Tímasetningar: 5.september - laugardagur kl 9.30-15.30.
7., 10., 14. Og 21. September – mánudagar og fimmtudagur kl 17.30-20.30
Nemendum þurfa að mæta á milli kennslutíma til að ná settu markmiði.
Námskeiðsgjald: 89.900 kr (80.910 kr. fyrir félagsmenn) allt efni er innifalið.
Á komandi önnum verða haldin 3ja vikna þema námskeið í vefnaði þar sem tekin eru fyrir ein af grunnbindingunum þremur; einskefta, vaðmál, eða ormel (satín) og samsettar bindingar.
Þema námskeiðin eru fyrir þá sem vilja ná tökum á öllum þáttum vefnaðar frá þræði að fullgerðri afurð. Unnið verður með skilning á íslenskum fagorðum vefnaðar.
Hvert násmkeið er sjálfstætt og hægt að taka stakt námskeið eða fleiri í hvaða röð sem er.
Þema námskeið 3; ormel (satin) og samsettar bindingar
Með því að sameina ólíkar bindingar má búa til munstur sem nefnast samsettarbindingar. Til er mikill fjöldi munsturgerða þar sem ólíkar grunnbindingar eru sameinaðar.
Á námskeiðinu er tekið fyrir samsett binding þar sem uppistaðan er hör 16/2 og hitt verkefnið er vöffluvefnaður þar sem uppistaðan og ívaf er pappírsgarn. Verkefnin eru tvö fyrir hvern nemanda; diskamottur og hitaplatti (motta undir heitt)
Fyrirkomulagið er með sama hætti og á einskeftunámskeiðinu þar sem tveir nemendur para sig saman við uppsetningu fyrir hvort verkefnið og hafa tvo stóla til umráða. Þess vegna er mikilvægt að nemendur mæti á milli tíma. Nemendur læra að rekja uppistöðu í slöngu, leggja í kamb og rifja slöngu á rifmeið, draga í haföld, binda fram og uppbindingu.