Vefnaður - framhaldsnámskeið - viskastykki / handþurkur
Kennari: Elísabet Jóhannsdóttir
Lengd námskeiðs: 5 skipti 18 klst
Tímasetningar: 31. október - laugardagur kl 9.30-15.30
2., 5., 9. og 16. nóvember - mánudagar og fimmtudagur.
Námskeiðsgjald: 82.900kr (74.610kr fyrir félagsfólk) efni er innifalið
Í nóvember bjóðum við uppá spennandi námskeið í vefnaði fyrir þau sem hafa lokið grunnnámskeiðum félagsins eða eru með reynslu af vefnaði þar sem nemendur vefa amk sex mismunandi viskastykki/handþurrkur. Hver nemendur rekur í slöngu (fyrir 6 stykki)og klárar að setja upp í vefstól.
Settar verða upp mismunandi bindingar í sex vefstóla og hver nemandi vefur eitt verkefni á hvern vefstól og færist svo yfir á næsta lausa vefstól. Bindingar sem notaðar verða eru: m.a. einskefta,litamunstur í einskeftu og vöffluvefnaður.
Nemendum þurfa að mæta á milli kennslutíma til að ná settu markmiði.