Vefnaður - byrjendanámskeið - FULLBÓKAÐ

Vefnaður - byrjendanámskeið

Kennari: Elísabet Jóhannsdóttir 

Lengd námskeiðs:  8 skipti = 28 klst. 

Tími: 11. apríl - fimmtudagur kl 18-21 

13. og 14. apríl, laugardagur og sunnudagur kl 10-15 

16., 18., 23. apríl og 2. og 7. maí -  þriðjudagar og fimmtudagur kl 18-21

Námskeiðsgjald: 89.500kr. (80.550 kr. fyrir félagsmenn). Efni er ekki innifalið

Vefnaðarnámskeiðið er ætlað byrjendum sem og þeim sem vilja upprifjun  í vefnaði. Kennt verður að setja upp í vefstól, farið yfir grunnbindingar í vefnaði og bindifræði.  Þátttakendur kynnast einnig nokkrum mismunandi gerðum vefstóla og gefst tækifæri til að gera prufustykki.

Verkefni námskeiðsins fara eftir áhuga og getu þátttakenda s.s. teppi, púðar, borðrenningar ofl. en í fyrsta tíma munu nemendur velja verkefni fyrir násmkeiðið. 

Nemendur hafa aðgang að vefstofu á opnunartíma á meðan námskeiðið stendur