VÍRAVIRKI FRAMHALD
Kennari: Júlía Þrastardóttir
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 9 klst.
Tími: 28. og 29. október kl 10.00-15.00 með 30 mín hádegishléi - laugardagur og sunnudagur
Námskeiðsgjald 38.500 kr (34.650 kr fyrir félagsmenn) efni er ekki innifalið
Víravirkið byggir á aldagömlum hefðum við þjóðbúningagerð en hefur komið sterkt inn í skartgripagerð á síðustu árum.
Á námskeiðinu er farið ítarlegar í aðferðirnar og sýndir fleiri möguleikar í víravirkinu, þá sérstaklega að kveikja. Nemendur velja sjálfir það verkefni sem þeir vilja en nauðsynlegt að hafa samband fyrir fram ef eitthvað sérstakt á að gera eins og t.d. millur þannig að kennarinn geti passað að vera með allt sem þarf. Einnig verður kennari með hugmyndir og sýnishorn á staðnum og því ekki skilyrði að vera búin að ákveða verkið fyrir fram. Námskeiðið hentar þeim sem kunna grunn í víravirki en byrjendur eru einnig velkomnir.
Nemendur geta keypt allt efni sem þarf af kennara