Undir lok 19. aldar kviknaði umræða um mikilvægi þess að koma á fót heimilisiðnaði á Íslandi. Með iðnbyltingunni tóku vélar og verksmiðjur við framleiðslu gamla sveitasamfélagsins og í breyttum heimi þurfti að endurskilgreina hugmyndir um hefðbundið handverk. Talsmenn heimilisiðnaðar litu þá til norrænna fyrirmynda og upp úr þeim jarðvegi spratt Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
Hér er sögð aldarsaga Heimilisiðnaðarfélagsins 1913-2013. Í henni endurspeglast hvernig félagið hefur þróast í takt við samfélagsbreytingar með fjölbreyttu starfi: námskeiðum, norrænusamstarfi, útgáfustarfsemi og verslunarrekstri.
Höfundur:
Áslaug Sverrisdóttir
Útgefandi:
Sögufélag
ISBN 978-993-546-622-8
Blaðsíðufjöldi:
303
Ritstjóri:
Anna Lísa Rúnarsdóttir