Þistill
Útsaumspakkning/Embroidery kit
Refilsaumur
Þistill úr Maríuklæði.
Altarisklæði frá Arnarbæli í Ölfusi.
Laid-and-couched embroidery
Thistle from Arnarbæli altar frontal, Arnarbæli, South Iceland.
Stærð:
12x18 cm
Size:
12x18 cm
Framleiðandi:
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Production:
The Icelandic Handicrafts Association
Sérstakar þakkir:
Þjóðminjasafn Íslands
With special thanks:
The National Museum of Iceland
Innihald:
Hvítt hörefni með áprentuðu munstri, útsaumsband og nál
Litir geta verið breytilegir nema annað komi fram
Contents:
White linen fabric with printed pattern, wool embroidery thread and needle
Colours may vary unless otherwise stated
Sýningin Með verkum handanna verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands 4. nóvember n.k. Á sýningunni verða dýrgripir íslenskrar listasögu til sýnis: fimmtán íslensk refilsaumsklæði sem varðveitt eru á Þjóðminjasafni Íslands, Louvre safninu í París, Nationalmuseet í Kaupmannahöfn og Rijksmuseum Twente í Hollandi. Afar fátítt er að sýningar séu settar upp hér á landi með svo mörgum lánsgripum frá öðrum söfnum. Þetta er því í fyrsta og mögulega síðasta skipti sem þessi merkilegu listaverk eru saman komin á einni sýningu.
Af þessu tilefni hefur Heimilisiðnaðarfélag Íslands í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands hannað fjórar útsaumspakkningar með sýnishornum úr þremur refilsaumuðum verkum sem varðveitt eru hér á landi; kross úr altarisklæði frá Svalbarði á Svalbarðsströnd, þistill úr altarisklæði frá Arnarbæli í Ölfusi, flétta úr altarisklæði frá Draflastöðum í Fnjóskadal og María himnadrottning úr altarisklæðinu frá Arnarbæli í Ölfusi.