Sýningin HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsi Reykjavíkur verður nú haldin í tuttugasta sinn og mun Heimilisiðnaðarfélagið ásamt Saumakassanum taka þátt.
Gróskan er mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði og fjölbreytnin mikil. Þessi sýning hefur verið gríðarlega vinsæl frá upphafi og dregur alltaf að sér þúsundir gesta. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem eru á staðnum og kynna vörur sínar á sýningunni.
Sýningin stendur í fimm daga og er aðgangur ókeypis.
Opnunartími:
Fimmtudagur 18. nóvember kl. 16-19
Föstudagur 19. nóvember kl. 12-18
Laugardagur 20. nóember kl. 12-18
Sunnudagur 21. nóvember kl. 12-18
Mánudagur 22. nóvember kl. 12-18
Verið velkomin