Kennarar: Kristín Vala Breiðfjörð og Oddný Kristjánsdóttir
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 4 klst.
Tími: 29. nóvember og 6. desember - þriðjudagar kl. 18-20
Námskeiðsgjald: 16.500 kr. ( 14.850 kr. fyrir félagsmenn) - efni innifalið
Lausavasar voru algengir fylgihlutir við klæðnað kvenna á fyrri öldum. Þeir voru oftast hafðir innanklæða og bundnir utan um mittið og hafðir hægra megin undir svuntunni. Í lausavösum sínum geymdu konur lykla, nálhús, þráðaleggi eða aðra persónulega muni. Á þessu námskeiði læra nemendur að sauma út í lítinn vasa og setja hann saman.
Vasinn getur verið fallegt jólaskraut á jólatré eða hurðarhún, eða hafður utan á jólapakka í stað jólakorts.
Allt efni er innifalið (áprentaður vasi, fóður, bak, bryddingar og útsaumsband) en nemendur taki skæri, fingurbjargir og rauðan tvinna með sér.
Nemendur get keypt efni í fleiri vasa á námskeiðinu.
Hámarksfjöldi nemenda er átta.