Prjónakaffi - aflýst vegna Covid-19

Fyrsta prjónakaffi haustsins er fimmtudagskvöldið 3. september, húsið opnar kl. 19 en kynningar hefjast kl. 20. Eins og hefð er fyrir á fyrsta prjónakaffi haustsins verður það kvöld kynnt þau námskeið sem eru í boði á haustönn í Heimilisiðnaðarskólanum. Þar kennir að venju ýmissa grasa, vefnaður, prjón og hekl, útsaumur, tóvinna, þjóðbúningasaumur o.fl. o.fl.

Allir velkomnir á prjónakaffi - ljúffengar kaffiveitingar á vægu verði!