Þjóðhátíðardagurinn með Heimilisiðnaðarfélaginu

Á Þjóðhátíðardaginn býðst prúðbúnum félagsmönnum og gestum Heimilisiðnaðarfélags Íslands að taka sæti á Austurvelli og hlýða á hátíðarávarp Fjallkonunnar.

Hægt er að taka þátt á tvo vegu:

Við munum fara með rútu frá Árbæjarsafni klukkan 09:30 niður í Ráðhús Reykjavíkur þar sem við munum festa skotthúfur og lagfæra slifsi. Klukkan 10:30 göngum við inn á Austurvöll frá Ráðhúsinu og hlýðum á hátíðarávörp og tónlistarflutning. Að athöfn lokinni söfnumst við saman í Alþingisgarðinum þar sem myndataka með Fjallkonu Reykjavíkur fer fram. Úr Alþingisgarðinum liggur leið okkar á veitingastaðinn Hjá Jóni við Austurvöll þar sem boðið verður upp á dögurð með kampavíni:

Egg Benedict
Lúxusskinka, hleypt egg, ensk múffa og sítrónu-hollandaise

Amerískar pönnukökur
Með tonkabaunasírópi og ferskum berjum

Kampavín

Klukkan 13:30 verður farið með rútu frá Ráðhúsi Reykjavíkur upp í Árbæjarsafn, þar sem boðið verður upp á hátíðardagskrá. Þjóðbúningaklæddir gestir fá frítt inn á safnið í tilefni dagsins!

Verð fyrir þátttöku með rútu og dögurð eru 10.000 krónur.

Sé þess óskað, er hægt að taka sæti á Austurvelli eingöngu og sleppa rútuferð og dögurð. Vinsamlegast tiltakið hvorn kostinn þið veljið í felliglugga á skráningablaðinu.

Skráið ykkur hér!