Jólaskraut – faldbúnings freyja
| Kennarar: | |||
| Kristín Vala Breiðfjörð | |||
| Lengd námskeiðs: | Tímasetningar: | ||
| 2 skipti = 5 klst. | 4. nóvember | Mánudagur | kl. 17.30-20.00 |
| 6. nóvember | Miðvikudagur | kl. 17.30-20.00 |
| Námskeiðsgjald: |
| 19.500 kr. ( 17.550 kr. fyrir félagsmenn) |
| Efni innifalið |
|
Á þessu námskeiði læra nemendur að gera litla freyju klædda í faldbúning sem er tilvalin sem skraut á jólatré. Faldbúningsfreyjan er gerð úr ullarfilti og getur verið skreytt á ýmsan hátt s.s. með útsaum, perlum eða leggingum. Smá heimavinna fylgir námskeiðinu þannig að það takist að klára á seinna kvöldinu. Nemendur þurfa að hafa með sér tvinna í ýmsum litum, nálar, skæri, fingurbjörg og ritföng en efni er innifalið í námskeiðinu. Nemendum stendur einnig til boða að kaupa efni í fleiri dúkkur. |